Færslur: 2007 Febrúar21.02.2007 23:13ÁLSEY VE 2 LANDAR I EYJUM
Skrifað af Þorgeir 21.02.2007 22:36fréttir af loðnuveiðumGóður gangur í loðnunni: fengið af www.eyjafrettir.is 30 þúsund tonn komin á land Hrognataka að hefjast og búið að frysta 6000 tonn Ísfélag og Vinnslustöð hafa tekið á móti 28.000 tonnum af loðnu í Vestmannaeyjum og þar af er búið að frysta 6.000 tonn. Hrognataka er hafin en bræla á miðunum hefur sett strik í reikninginn og á miðvikudag voru loðnuskipin við Reykjanes. Sighvatur VE kom inn á þriðjudagskvöld með 600 tonn sem fengust á Selvogsbanka. Klárað var að landa 500 tonnum úr Kap VE aðfaranótt miðvikudags og þá hófst löndum úr Sighvati og aflinn úr báðum skipunum fór í frystingu. Guðni Ingvar Guðnason, útgerðarstjóri Vinnslustöðvarinnar sagði á miðvikudagsmorgun að loðnan væri nú vestan við Eyjar en skipin hafa leitað vestur undir Reykjanes til að vera í skjóli enda bræla á miðum. Stefán Friðriksson, aðstoðarframkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, sagði að þar á bæ væri búið að taka á móti 13.000 tonnum af loðnu á vertíðinni og u.þ.b. 3000 tonn hefðu verið fryst á Japans- og Rússlandsmarkað. Áætlað var að hefja hrognafrystingu á fimmtudag. Hrognataka var að hefjast hjá Ísfélagi á miðvikudag en þá var verið að landa 1200 tonnum úr Sigurði VE. Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri, sagði að skip Ísfélagsins væru búin að veiða 30.000 þúsund tonn af loðnu og 15.000 tonn væru komin á land í Eyjum. Ísfélagið er með sex skip við loðnuveiðarnar. Björn Brimar, vinnslustjóri Ísfélagsins sagði að búið væri að vinna 3.000 tonn hjá frystihúsinu. ?Þetta hefur verið mjög stífvika, en veðrið hefur sett strik í veiðarnar og áta í loðnunni. Hins vegar hefur loðnan verið góð undanfarið og við erum að byrja að frysta hrogn núna, reynum að frysta loðnu með til að byrja með en svo verðum við að skipta alveg yfir í hrognin," sagði Björn Brimar.
Skrifað af Þorgeir 19.02.2007 00:57MÁLMEY SK 1
Skrifað af Þorgeir 17.02.2007 16:09Sigurður Ve 15
Skrifað af Þorgeir 16.02.2007 22:50Aðalskrifstofur Samherja H/F
Skrifað af Þorgeir 14.02.2007 11:00Kleifarberg Óf 2þormóður Rammi hefur selt frystitogarann Kleifarberg Óf 2 til Brims H/F og verður skipið afhent nýjum eigendum 30 mars allri áhöfninn hefur verið boðin áframhaldandi starf hjá nýjum eigendum nánar á skip.is Skrifað af Þorgeir 13.02.2007 23:36Guðmundur Ólafur Óf 91 á miðunumFin loðnuveiði er búinn að vera undan farin sólahring og mörg skip búin að fá mjög góðan afla, hér má sjá Guðmund Ólaf óf 91, með nótina á siðunni. Mynd þorgeir baldursson Skrifað af Þorgeir 13.02.2007 09:00Heimaey Ve 1Heimaey Ve 1 kom fyrir skömmu úr sinni siðustu veiðiferð fyrir Isfélag Vestmannaeyja en ákveðið hefur verið að leggja skipinu sem að búið er að þjóna Vestmannaeyjingum vel og lengi skipstjóri er Sigurjón Ingvarsson Skrifað af Þorgeir 12.02.2007 01:10Oddeyrin Ea 210Oddeyrin Ea 210 kom til Akureyrar i gærmorgun kl 10 og voru þá teknar nokkrar myndir, hérna er 1 þeirra og fleiri eru i mynda albúmi. Skipið er 55 metra langt og 12 ,2 metrar á breidd með 4000 hp MAK Aðalvél. Skipið er útbúið með rækjulinu og heilfrystibúnaði og getur dregið 2 troll. Skipstjórar eru Guðmundur Freyr Guðmundsson og Hjörtur Valsson. Fleiri myndir i myndaalbúmi Skrifað af Þorgeir 09.02.2007 23:28Hálendismyndir /vegaskarðÞAÐ ER OFT FALLEGT UM AÐ LITAST Á MÖÐRUDALDÖRÆFUM VEGASKARÐ FRAMUNDAN Skrifað af Þorgeir 09.02.2007 20:37VIÐIR EA 910 Mettúr úr BarentshafiViðir ea 910 eitt skipa Samherja h/f kom i dag til Akureyrar með 13000 kassa og aflaverðmæti uppá 160 milljónir sem að er einn besti árangur skipsins undir merkjum samherja . f/t Venus Hf 519 i eigu HB Granda kom lika inn til akureyrar með 11000 kassa og 148 milljónir Skrifað af Þorgeir
|
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 815 Gestir í dag: 15 Flettingar í gær: 495 Gestir í gær: 29 Samtals flettingar: 1247466 Samtals gestir: 54867 Tölur uppfærðar: 11.3.2025 12:11:55 |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is